Hótel Borg er staðsett í hjarta miðbæjarins við Austurvöll, næst Dómkirkjunni og Alþingishúsinu, aðeins steinsnar frá iðandi mannlífi miðborgarinnar. Stutt er í verslanir, kaffihús og veitingastaði auk fjölda markverðra staða.
Staðsetning hótelsins er tilvalin fyrir þá sem vilja sækja menningarviðburði í miðborginni, rölta á milli kaffihúsa og njóta alls þess sem miðborgin hefur upp á að bjóða.
HEIMILISFANG
Pósthússtræti 9-11
101 Reykjavík551 1440
hotelborg@keahotels.is
BÍLASTÆÐI
Hótel Borg er staðsett í einum elsta borgarhluta Reykjavíkur sem einkennist af mörgum smáum og einstaka einbreiðum götum. Bílastæði má finna víða auk bílastæðahúsa líkt og sýnt er hér á korti, en hvorutveggja er gjaldskilt samkvæmt leiðbeiningum á hverjum stað.